fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég tek undir greiningu hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur að mestu eða öllu leyti og hef mjög verulegar áhyggjur af því sem hún spurði um hér í lokin, þetta geti þvælst fyrir m.a. og ekki hvað síst gagnvart sveitarfélögunum og möguleikum þeirra til að koma til móts við launþega, koma til móts við heimili landsins. Það veldur mér samt enn meiri áhyggjum að það verði engin stefna hjá ríkisstjórninni, að það verði engin sameiginleg sýn. Þar af leiðandi geti hún ekki á réttum tímapunkti orðið til þess að leysa kjaradeilur sem við horfum fram á nú, einfaldlega vegna þess að innan ríkisstjórnarinnar sé engin sameiginleg stefna. Það vilji hver fara í sína átt og þau hafa reyndar tjáð sig um það að einhverju leyti nú þegar. Fyrsta atriðið sem ríkisstjórnin þarf að huga að, vilji hún koma að gagni á vinnumarkaði — og ég ítreka að ég tek undir með hv. þingmanni, ríkisstjórnin á ekki að vera leiðandi í þeim viðræðum — þegar kemur að því að menn munu vilja sjá hvernig t.d. gjöldum og sköttum verður háttað til að reikna það inn í heildardæmið, þá þarf stjórnin að vera tilbúin. En getur hún orðið það á meðan hún er svona út og suður? Það er erfitt að sjá það fyrir sér. Nú nota ég tækifærið og hvet ríkisstjórnina til að forgangsraða í vinnu sinni fram undan með því að reyna að ná saman um hvernig hún muni nálgast komandi kjarasamninga. Ef hún gerir það ekki þá verður aðkoma ríkisins jafnvel bara til tjóns.