fjárlög 2023.
Forseti. Hv. þingmaður talaði um að það skipti máli hvaðan við værum að koma og vísaði í Covid sem kostaði ansi mikinn pening, skiljanlega. En hvernig ætlum við að koma okkur upp úr þeirri holu, því sem það kostaði? Sitt sýnist hverjum um hversu vel aðgerðirnar tókust hver fyrir sig, en látum það liggja milli hluta, staðan er eins og hún er í dag og við þurfum að gera eitthvað í því. Hvað gerum við og hvernig getum við lagað þetta? Eins og fjárlagafrumvarpið liggur fyrir framan okkur horfum við upp á rétt um 90 milljarða kr. halla á næsta ári, 89 milljarða. Það er með sölu á afganginum af Íslandsbanka sem eru 70–80 milljarðar, þá erum við komin í 160 eða 170 milljarða mínus varðandi rekstur, ef við tökum frá svona einskiptisaðgerðir, lagfæringar til að jafna þá stöðu. Ef við drögum frá þá stöðu sem væri uppi án þess að selja Íslandsbanka þá væru það rúmir 100 milljarðar í viðbót, við förum í 260–280 milljarða í mínus rekstrarlega séð áður en við seljum Íslandsbanka. Það er staðan eins og hún liggur. Það sem ég myndi vilja sjá er hvernig reksturinn, almenni reksturinn, óháð því að selja ríkiseignir, svona einskiptisaðgerðir, er að klifra í áttina að núlli. Það skiptir ekki máli hvort við séum að klifra upp í núll frá 280 milljörðum í mínus, munar vissulega upp á vaxtagjöld, eða frá 90 milljörðum í mínus því það þarf að vera jafnvægi á rekstrinum yfirleitt. Hvar endurspeglast það í fjárlagafrumvarpinu og í einhvers konar sviðsmynd fyrir okkur (Forseti hringir.) að það sé verið að ná því markmiði, upp á þá hagvaxtarhorfur o.s.frv.? Mér finnst það ekki nægilega vel kynnt.