153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:09]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég kom í þennan ræðustól í upphafi faraldursins og spáði aðeins fyrir um það hvernig þetta myndi fara og hvað þetta myndi kosta okkur, hvað við ættum að gera í kjölfarið. Þá nefndi ég einmitt að við ættum tvímælalaust að vaxa út úr vandanum. Þetta væri ákveðin hola sem við þyrftum að grafa til að fjármagna aðgerðirnar sem við þyrftum að fara í en síðan ættum við í rauninni bara að geyma þá holu og smám saman fylla upp í hana með eðlilegum rekstri. Það fór ekki alveg svoleiðis. Holan sem var grafin fannst mér vera grafin pínulítið rangt, á ákveðnum markaðsforsendum sem eru að valda vaxtahækkunum og vaxtagjöldum og ýmsu svoleiðis. Ég hefði frekar viljað fara í aðgerðir með Seðlabankanum, með beinu Seðlabankaláni t.d. sem væri í raun með engum vöxtum og það væri bara geymt, það væri bara á milli Seðlabankans og ríkisins að klára það í gegnum peningastefnuna meðan það væri hlutverk ríkisins í þeim aðstæðum, eins og í þessum aðstæðum, að verja fólk fyrir áhrifum verðbólgunnar sem er óhjákvæmileg, óháð því hvaða aðferð er notuð til þess að afla þessara aukafjármuna. Ég er því alveg með á því að við munum vaxa út úr þessu, það er bara spurning hversu langan tíma það tekur. Sem hluti af því þá lögðum við Píratar og aðrir í stjórnarandstöðunni til 9 milljarða nýsköpunarpakka strax í upphafi faraldursins. Það var ekki nógu gott, fannst ríkisstjórninni. Hún hækkaði aðeins sínar hugmyndir um nýsköpunarmálin en þegar allt kom til alls þá voru 9 milljarðar nákvæmlega það sem hefði dugað til að fjármagna það sem eftirspurn var (Forseti hringir.) eftir þetta fyrsta sumar, miðað við umsóknir í Tækniþróunarsjóð og aðra sjóði. Þar misstum við af fullt af tækifærum til að vaxa út úr vandanum. (Forseti hringir.) Ég spyr aftur: Hvernig sjáum við það sem mun skila okkur í plús?