153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:04]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í ákveðin atriði fjárlagafrumvarpsins sem varða baráttuna við verðbólguna. Lagðar eru til hækkanir á ýmsum gjöldum og það blasir við, og ég hygg að það sé óumdeilt, að það muni hafa bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs. Fer það ekki gegn verðbólgumarkmiðum ríkisstjórnarinnar að fara út í þessar hækkanir sem við vitum að hafa áhrif út í verðlagið? Hvernig fer þessi gjaldapólitík ríkisstjórnarinnar saman við markmið Seðlabanka Íslands um að halda verðbólgunni í skefjum?