153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:21]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við búum í góðu samfélagi en það er ekki þessari ríkisstjórn að þakka eða stjórnvöldum. Það er ekki þannig. Við búum að svo stórkostlegum auðlindum á Íslandi sem eru fiskimiðin, náttúruauðlindirnar, orkumálin, sem við erum nánast búin að gefa frá okkur að hluta til Brussel, og stórkostleg náttúrufegurð. Það koma hingað 2 milljónir ferðamanna á ári. Það er það sem gefur verðmætin, verðmætasköpunina. Það getur vel verið að þetta sé gott samfélag fyrir alla. Það breytir því ekki að lægsti hluti samfélagsins hefur það ekki gott. Og varðandi fjárlagafrumvarpið, þegar rætt var hér um tekjumódelið og lagt til að hækka veiðileyfagjöldin t.d. eða bankaskatt, þá er maður bara sakaður um öfund og sósíalisma og kommúnisma. Fjármálaráðherra landsins er skattamálaráðherra landsins en ef aðrir nefna einhverjar tillögur í skattamálum þá er það bara einhver önnur hugmyndafræði. Þetta frumvarp er algerlega laust við alla stefnu, algerlega, og sérstaklega í þessum málaflokkum sem þarf að taka á, t.d. í ljósi velgengni flokksins sem ég er fulltrúi fyrir. (Forseti hringir.) Það er krafa um það í samfélaginu að tilfærslukerfin og velferðarkerfið standi undir sér. Og bara eitt að lokum, (Forseti hringir.) af því að sagt er að það sé svo gott að búa á landinu. Eins og kom fram hjá formanni Flokks fólksins: Ef þú átt við geðheilbrigðisvandamál (Forseti hringir.) að stríða þá áttu að koma milli tólf og fjögur á virkum dögum til að fá þjónustu. (Forseti hringir.) Það er velferðarkerfið. Það er lokað um helgar og á kvöldin.