153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er ekki eins flókið og umræðan ber með sér. Aðalatriði málsins er það að sú skattapólitík sem við höfum verið að reka hefur skilað sér best til lágtekju- og millitekjufólks. Það gerðist fyrst með því að við afnámum miðþrepið og síðan með meiri háttar skattkerfisbreytingum sem skiluðu lágtekjufólki um 10.000 kr. lægri sköttum á mánuði í síðustu skattkerfisbreytingu. Þannig skattstefnu höfum við talað fyrir og hún hefur skilað sér vel. Þetta er allt mælanlegt. Það er hægt að sjá þetta á kaupmáttaraukningunni hjá öllum tekjutíundum. Samt koma menn hér upp ítrekað og segja að allar okkar breytingar og öll okkar skattapólitík snúist eingöngu um þá sem séu efst í skattstiganum. Það er einfaldlega rangt. Auðveldast er að sjá þetta með því að skoða hvernig skattprósentan hefur þróast hjá efstu tekjutíundinni í tekjuskattskerfinu þar sem við höfum látið allar okkar skattbreytingar fjara út rétt í kringum milljónina. Hér er komið inn á að nú sé upplagt tækifæri til að fara í aðgerðir eins og t.d. er gert í Bretlandi. Hvað eru þeir að gera í Bretlandi einmitt núna? Það er verið að færa hagnað orkufyrirtækjanna til heimilanna, niðurgreiða orkuna, en verðið er að rjúka upp úr öllu valdi. Ég rakti það nú bara svona að gamni mínu hér í gær að það hefur komið fram að það kosti um 400 íslenskar kr. að láta renna í heitt bað í Bretlandi. Slíkar hamfarir eru að verða þar í orkumálum. Við höfum bara ekkert tilefni til þess að gera slíka hluti hér út af orkumálum. Það er ekki tilefni til þess. Ríkissjóður er ekki í sömu vandræðum hér og er í Bretlandi. Það er að verða stórkostleg kjararýrnun í Bretlandi en ekki á Íslandi. Við höfum verið að stórauka kaupmátt hjá öllum tekjutíundum ár eftir ár. Nú glímum við tímabundið við verðbólgu og þá vilja menn nota það sem einhverja sérstaka réttlætingu fyrir því að hækka alla skatta upp úr öllu valdi. Ég er bara hingað mættur til að segja ykkur að það er alger óþarfi. (Forseti hringir.) Ríkissjóði gengur mun betur núna en í fyrra og mun halda áfram að ganga vel. (Forseti hringir.) Okkar áherslur eru á hið venjulega heimili og sagan talar sínu máli. Þar höfum við verið að skila árangri.