153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:51]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra leikur hér aftur þann leik sem hann lék í gær, mætir með fjárlagafrumvarpið sitt og segir: Þið viljið hækka skattana. En það er hann sem er að hækka skatta og gjöld í sínu frumvarpi og láta aðhaldið í ríkisfjármálum bitna á tekjulægstu hópunum, lágtekju- og millitekjufólki, sama fólkinu og verður fyrir barðinu á hærri stýrivöxtum, það fær þannig á sig tvöfaldan skell. Ég skora á hæstv. fjármálaráðherra, vegna þess að hann talar mikið um skattbyrði og þá þróun sem hefur orðið þar, að ráðast nú í vinnu í fjármálaráðuneytinu, taka upp vefinn tekjusagan.is og bæta þar inn — 20 ár aftur í tímann eða svo, tölum um það hvernig skattbyrði þróaðist á tímabilinu. Taka ekki bara fram hvernig ráðstöfunartekjur þróuðust (Gripið fram í.) heldur líka hvernig skatt…(Fjmrh.: Er það ekki aðalmálið?) — Já, bara hvort tveggja. (Forseti hringir.) Ég held að það væri fróðlegt að fá þá mynd fram og þá væri auðveldara að meta það hvernig Sjálfstæðisflokknum gengur að lækka skatta á lágtekju- og millitekjufólk.