153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:03]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Það ríkir neyðarástand á bráðamóttöku Landspítalans. Það ríkir neyðarástand í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Starfsaðstæður eru víða óboðlegar og biðlistar lengjast. Fólk þarf að bíða dögum saman eftir tíma á heilsugæslunni og mönnunarvandinn vindur upp á sig. En ríkisstjórnin gerir ekkert nema uppreikna upphæðir fjárframlaga fyrri ára, ára sem sýndu alvarlega veikleika í heilbrigðiskerfinu. Fjármálaráðherra talar um betri stöðu ríkissjóðs en búist var við. Sú staða er ekki nýtt til að bæta heilbrigðiskerfið líkt og kallað er eftir úti um allt land heldur er krafa gerð um að heilbrigðisstarfsfólk hlaupi hraðar, taki á sig enn meira álag og geri meira fyrir minna. Uppsagnir eru á bráðamóttöku Landspítalans vegna langvarandi álags. Ítrekað hefur verið bent á að einmitt þetta gæti gerst. 14 hjúkrunarfræðingar hættu þar um síðustu mánaðamót og tíu munu ganga út ef að líkum lætur við næstu mánaðamót. Það eru engar fréttir um að hjúkrunarfræðingar ætli að draga uppsagnir sínar til baka og það fást ekki hjúkrunarfræðingar inn í staðinn.

Stóri vandinn á bráðamóttökunni er skortur á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum en ástandið er ekki bara slæmt á bráðamóttökunni í Reykjavík. Það er líka slæmt á Suðurnesjum og Suðurlandi. Hjúkrunarfræðingar hafa ekki samið um launakjör sín síðan 2011 og eru með tvo gerðardóma á bakinu. Byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga eru um 500.000 kr. og algengustu grunnlaun eru um 640.000. Skilaboðin sem koma frá hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum eru alveg skýr og þau eru þau sömu um allt land: Það verður að bregðast við mönnunarvandanum með afgerandi hætti. Það verður að hækka launin og bæta starfsumhverfi svo hægt sé að veita viðunandi þjónustu. Uppsagnir hjúkrunarfræðinga eru ekki bara á bráðamóttöku Landspítalans heldur í öllu kerfinu. Það gerist hægt og hljótt. Starfsfólkið bugast undan álagi og fer. Eftir er starfsfólk sem þarf að taka á sig enn meira álag. Sumarið var mjög erfitt og margir fengu ekki sumarleyfi eins og áætlað var. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri var róðurinn afar þungur og starfsfólk þar kallað inn til vinnu úr sumarleyfum svo að möguleiki væri á því að halda þokkalegri þjónustu við sjúkt fólk. Aldrei hefur verið eins lítið um sumarafleysingar hjúkrunarfræðinga og í sumar og það á við um landið allt og hjúkrunarfræðingar sumir tóku út sumarfríið sitt á einni starfseiningu en unnu svo á annarri í fríinu til að mæta manneklu. Læknir sagði frá því á dögunum að hann hefði staðið langar vaktir samfleytt í 22 daga í sumar. Heilbrigðisstarfsfólk er sett í óviðráðanlegri stöðu en reynir samt að láta allt ganga.

Viðbrögð ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem er á sínu fimmta starfsári, eru engin og hafa engin verið til að stöðva þessa óheillaþróun. Veikleikar heilbrigðiskerfisins komu skýrt fram í Covid. Stjórnvöld þurfa að segja okkur hvernig heilbrigðiskerfi þau gera ráð fyrir að byggja upp eftir Covid og hvernig á að takast á við framtíðina, Það er ekkert í þessu fjárlagafrumvarpi sem gefur neina von. Það er engin von fyrir starfsfólk í heilbrigðiskerfinu eða fólk sem þarf á þjónustu þess að halda. Tölur til rekstrar Landspítalans eru framreiknaðar í frumvarpinu miðað við starfsemina í ár, ekki aur til að taka á mönnunarvanda og ekki er gert ráð fyrir nýjum verkefnum eða sókn til framtíðar. Spítalinn sýnir ekki hallarekstur. Það er vegna þess að þeim tekst ekki að manna lausar stöður.

Fyrir sex árum síðan, á árinu 2016, var líkt og oft áður og síðar hávær krafa um að heilbrigðiskerfinu yrði raðað framar. Um 60.000 manns skrifuðu undir kröfu um að til heilbrigðiskerfisins yrði varið 11% af vergri landsframleiðslu líkt og gert er í hinum norrænu ríkjunum. Raunin í dag er sú, sex árum síðar, að um 8,5% af vergri landsframleiðslu er varið til heilbrigðismála. Ef farið væri eftir 11% kröfunni frá árinu 2016 á næsta ári þyrftum við að bæta til heilbrigðismála um 97 milljörðum kr. Við erum langt á eftir nágrannaþjóðum sem fjárfesta mun meira en við í heilsu og lífsgæðum fólks. Það er enda fjárfesting sem borgar sig. Við þurfum og eigum að hlúa að veiku fólki og umbuna þeim sem hafa helgað sig því starfi með mannsæmandi launum og mannsæmandi vinnutíma. Við verðum að laða fleiri að til að sinna þessum mikilvægu störfum.

Fyrir 20 árum stóðum við betur hvað þetta varðar. Hægfara hnignun hefur átt sér stað í kerfinu. Reiknað hefur verið út að á árunum 2001–2019 hafi framlög verið aukin um 11,5% til Landspítalans á meðan fjárþörfin var 38%. Þegar framleiðsla Landspítalans árið 2019 í svokölluðum DRG-einingum var skoðuð eftir aldurshópum kom í ljós að kostnaður við hvern einstakling 60 ára og eldri var fjórfalt meiri en við einstakling 59 ára eða yngri. Við vitum öll að þjóðin er að eldast. Það kallar á aukna heilbrigðisþjónustu, fleiri heilbrigðisstarfsmenn og lausnir á vanda kerfisins til skamms og lengri tíma og aukin fjárframlög.

En hverjar eru lausnir ríkisstjórnarinnar? Fjármálaráðherrann sagði í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu á dögunum að aukinn einkarekstur væri það sem grípa þyrfti til. Heilbrigðisstofnanir eru fjársveltar, starfsfólkið fer vegna álags og slæmra starfsaðstæðna, biðlistar lengjast og fjármálaráðherra vill aukinn einkarekstur.

En hver á að borga fyrir það rekstrarform? Eru það sjúklingarnir? Mig grunar að fjármálaráðherrann sé að tala um að ríkissjóður setji fjármuni inn í einkareksturinn. Eins einkennilegt og það hljómar þá finnur ríkisstjórnin undir forystu Vinstri grænna fjármuni í einkarekstur en sveltir opinberar stofnanir. Skýrt dæmi um þetta er heilsugæsla á Suðurnesjum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur ekki fengið fjárframlög sem eru í takt við mikla fjölgun íbúa eða íbúasamsetningu. Íbúar svæðisins eru uggandi um stöðuna og leita inn á höfuðborgarsvæðið eftir sjálfsagðri grunnþjónustu heilsugæslunnar. En nú er búið að bjóða út heilsugæslu á Suðurnesjum sem á að starfa, að mér skilst, við hlið þeirrar opinberu sem fyrir er. Síðasti dagurinn til að leggja inn tilboð í reksturinn er reyndar í dag. Skyndilega voru stjórnvöld tilbúin til að opna veskið og greiða fyrir heilsugæslu við Suðurnesjamenn en aðeins ef einkaaðilar tækju að sér reksturinn, fjárfestingarsjóðir, fjárfestingarfélög eða hvað veit ég. Íbúar svæðisins kalla eftir þjónustunni sem þeir eiga rétt á en það er stjórnvalda að sjá til þess að aldrei leiki vafi á því hvort gangi framar, hagur sjúklinga eða hagur rekstraraðila.

Samningar við sérgreinalækna runnu út árið 2019. Sérgreinalæknar innheimta í samningsleysinu aukagjöld af sjúklingum sem kallast komugjöld, upphæðir sem leggjast ofan á þá fjárhæð sem einstaklingur greiðir samkvæmt greiðsluþátttökukerfinu. Í sumar hringdi ég á nokkra staði til að kanna hversu margar krónur fólk þarf að greiða beint til sérgreinalækna ef það þarf á þjónustunni að halda. Á Læknasetrinu ehf. í Þönglabakka er komugjaldið 3.600 kr., en 2.500 kr. á Læknastöðinni í Glæsibæ en þar er einnig sérstakt gjald fyrir speglanir 4.000–8.000 kr. Þetta gjald þurfa sjúklingar að greiða við hverja komu óháð því hve mikið þeir hafa greitt áður og hver staða þeirra í greiðsluþátttökukerfinu er. Á meðan enginn samningur er í gildi ákveða sérgreinalæknar sjálfir gjaldtöku og útgjöld ríkisins hækka ekki vegna greiðsluþátttöku því kostnaðurinn fellur á sjúklinga. Það er farið ofan í vasa fólks sem stendur veikt fyrir og þarf á sérfræðiþjónustu að halda. Heilbrigðisráðherra veit ekki hversu djúpt er farið í vasa sjúklinganna líkt og svar ráðherrans við fyrirspurn minni um þetta í vor sýndi svo ágætlega.

Frú forseti. Stjórnvöld verða að bregðast við svo heilbrigðisstarfsfólk haldist í vinnu og hinir sem hafa yfirgefið heilbrigðisvettvanginn snúi þangað aftur. Heilbrigðiskerfið verður ekki bætt nema ráðist sé í markvissar aðgerðir og það verður að byrja strax. Það verður að byrja strax.