153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:36]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka þessi mál upp hér, samgöngumál, sem eru mitt hjartans mál. Já, ég hef töluverðar áhyggjur og ekki bara af því að framkvæmdirnar séu verðbættar sem slíkar heldur bara af allri þessari áætlanagerð. Það hefur gengið mjög erfiðlega fyrir stjórnvöld að áætla opinberar framkvæmdir. Þarna erum við með tugmilljarða framkvæmdir á hverju ári eða fjármuni sem ætlaðir eru í samgönguframkvæmdir á hverju ári og af mörgum mismunandi ástæðum gengur mjög erfiðlega að fylgja því framkvæmdaplani sem samgönguáætlun er. Fimm ára samgönguáætlun er svona fimm ára framkvæmdaáætlun og það geta verið skipulagsmál, alls kyns útboðsferli, undirbúningur og ýmislegt sem tefur þetta þannig að þarna er oft margt að breytast á milli ára.

Svo er það annað sem ég hef líka áhyggjur af í þessu, við erum með þessar verðbætur eða útboð breytast, þau hækka bæði og lækka þannig að það er einhver innbyggður „buffer“. Þetta eru háar tölur, þannig að það er kannski ekki alltaf nauðsynlegt að verðbæta. Stundum er hægt að fara hraðar í framkvæmdir af því að ekki er hægt að koma öllum framkvæmdum af stað. En svo er það líka annað, það er ekki nóg að framkvæma í vegakerfinu, það þarf að viðhalda vegakerfinu. Ég held að við þurfum þá að vita hvert verðmæti vegakerfisins er, hverjar afskriftirnar eru. Og þó að við myndum vita það þá fer það ekki sjálfkrafa í viðhaldspottinn ár frá ári. Ég hef því töluverðar áhyggjur af því hvernig við vinnum að afskriftirnar.