fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að taka málefni Reykjanesbrautarinnar hér upp. Ég er álíka áttavilltur í málum Reykjanesbrautar og hv. þingmaður, en ég hef lengi barist fyrir því að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar verði kláruð. Það er fyrst og fremst vegna þeirra tíðu slysa sem þar hafa verið og líka út af því sem ég talaði um hér í ræðu minni áðan, þjóðhagslegum ábata af framkvæmdum. Þarna fara tugþúsundir bíla um og enn þá fleiri einstaklingar á hverjum einasta degi og stór partur þjóðarinnar fer þarna um reglulega. Í einni af fyrstu samgönguáætluninni sem ég tók þátt í var Reykjanesbrautin sett á árið 2019, tvöfölduð alla leið upp að flugstöð. Við sjáum hvað þær framkvæmdir sem hafa verið gerðar nú þegar á Reykjanesbrautinni hafa dregið úr slysum eins og hv. þingmaður kom inn á, og hvað samfélagið gengur greitt. Það er hagvaxtarhvetjandi þegar þetta gengur. Það er engin sóun þar sem gengur vel. Tvöföldun brautar með mislægum gatnamótum, það er til fyrirmyndar og eins og það á að vera. Og út af þessu mikilvægi var Reykjanesbrautin í forgangi eitt í síðustu samgönguáætlun. Sú samgönguáætlun var fjármögnuð í fjárlögum og átti framkvæmdin að fara af stað á síðasta ári, síðasta haust, fyrir ári síðan. Ég hlakka því mikið til að fá að ræða það við hæstv. samgönguráðherra hér á eftir hvað tefur.