fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Innviðaráðuneytið ber ábyrgð á ráðstöfun á 94 milljörðum í frumvarpinu sem hér er til umræðu en það svarar til 7,2% af heildarútgjöldum ríkisins á næsta ári. Fjárfestingar í vegamannvirkjum verða áfram fyrirferðarmiklar á næsta ári þótt það dragi aðeins úr. Þannig eru á næsta ári til ráðstöfunar um 26 milljarðar sem er um 3 milljörðum minna en í ár. Samdráttur milli ára á sér einfalda skýringu sem er þensla. Hagkerfið hefur tekið vel við sér eftir niðursveifluna sem fylgdi heimsfaraldrinum, sem er gott, en þensla og hækkandi verðbólga er það hins vegar ekki. Til að vinna gegn þessu hefur ríkisstjórnin, eins og þessi salur veit, kynnt þensluminnkandi aðgerðir, þar á meðal er 3 milljarða tímabundin lækkun til vegaframkvæmda en þessir 3 milljarðar fara ekki langt og verða til ráðstöfunar ári seinna eða á árinu 2024.
Það var að mínu viti það eina rétta á sínum tíma að spýta í fjárfestingar til að bregðast við samdrætti í hagkerfinu. Það var hárréttur tími til að stórbæta innviðina okkar en nú þurfum við aðeins að hægja á á sama hátt. Það dylst þó engum, og allra síst þeim sem hér talar, að enn er mikil þörf fyrir fjárfestingar í samgönguinnviðum. Eitt eru bein framlög ríkisins í innviðauppbyggingu og hitt eru fjárfestingar í innviðum í samvinnu við einkaaðila. Í sumar var stórt skref stigið á þeirri vegferð þegar skrifað var undir verksamning um byggingu vegar um Hornafjörð, svokallaða Fljótabrú. Þessi framkvæmd telst með þeim stærri, hún styttir hringveginn um 12 km og einbreiðum brúm mun fækka um þrjár á hringveginum. Næsta skref hefur þegar verið stigið en í þessum töluðu orðum stendur yfir undirbúningur fyrir forval á Ölfusárbrú sem til stendur að auglýsa í næsta mánuði. Það er um 10 milljarða framkvæmd. Þetta er rökrétt framhald á mikilli innviðauppbyggingu á Suðurlandsvegi en nýr 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum verður opnaður í lok ársins talsvert á undan áætlun. Það er ekki bara nauðsynleg framkvæmd með tilliti til umferðaröryggis heldur er hún líka arðbær. Hún er kolefnishlutlaus og hún er snjöll en um er að ræða fyrsta veginn sem er hannaður til að taka á móti sjálfkeyrandi eða hálfsjálfkeyrandi bílum.
Fjárfestingar í samgönguinnviðum einskorðast ekki við vegi og brýr heldur líka hafnir og flugvelli. Fjárfestingar í höfnum eru svipaðar og í ár eða upp á um 1,5 milljarða og munum við sjá hafnarframkvæmdir um allt land í samræmi við samgönguáætlun.
Í innanlandsfluginu bætum við í fjárfestingar og rekstur og festum Loftbrúna í sessi. Um 5,5 milljarðar eru ætlaðir í þessi verkefni á næsta ári en ný millilandaflugstöð á Akureyri er ugglaust stærsta verkefnið. Margir reiða sig á almenningssamgöngur sem eru mikilvægur hluti samgöngukerfisins. Það er mikil ánægja með nýjustu viðbótina, Loftbrúna, sem bætir aðgengi íbúa á landsbyggðinni mjög mikið. Hún hefur sannað gildi sitt. Aldrei hafa fleiri nýtt Loftbrúna en í ár. Almenningssamgöngur í víðum skilningi eru þó áfram áskorun þrátt fyrir að ríflega 5 milljörðum verði varið í þær á næsta ári. Hærri verð eru að sjást í útboðum sem skýrist m.a. af hækkun eldsneytisverðs. Þessar hækkanir eru ekki bundnar við Ísland og flest nágrannalönd okkar eru í sömu sporum þar sem óvissu gætir á mörkuðum.
Þjónusta á vegum, eins og snjómokstur, hálkuvarnir o.fl., skiptir miklu máli. Við þurfum að komast á milli staða og við þurfum að vera örugg á þeirri leið. Þessi þjónusta er mikilvæg en hún kostar vaxandi fjármuni. Væntingarnar eru miklar. Á næsta ári er veitt svipað fjármagn í þessa þjónustu eða um 6,5 milljarðar.
Það sem ég hef þegar farið yfir eru í raun allt byggðamál; innviðir, viðhald þeirra, þjónusta innviðanna, almenningssamgöngur. Við erum engu að síður með sérgreinda fjármuni í byggðamál eða tæpa 2 milljarða, það sem heyrir undir byggðaáætlun, sóknaráætlun landshluta og atvinnuráðgjöf á landsbyggðinni. Litlar breytingar eru á fjárveitingum í þennan málaflokk á næsta ári.
Byggðamál og samgöngur eru samofin og það sama má segja um sveitarstjórnarmál. Framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækka um 2 milljarða eða um 8,2% og verða um 27 milljarðar. Þannig reynast tekjur ríkis og sveitarfélaga hærri en spár gerðu ráð fyrir eins og við þekkjum. Það eru jákvæð teikn á lofti þrátt fyrir að sveitarfélögin hafi ekki farið varhluta af heimsfaraldrinum rétt eins og ríkissjóður. Þegar erfiðleikar steðja að reynir á samstöðu og samvinnu bæði innan sveitarfélaga, milli sveitarfélaga og milli ríkis og sveitarfélaga. Stundum er tekist á en í grunninn eru allir sammála um að vinna saman og ég er sannfærður um að við getum haldið áfram á þeirri braut. Og talandi um samofna málaflokka, samvinnu og samstöðu, þá eru samgöngur, byggðamál og sveitarstjórnarmál samofin og við það má bæta skipulags- og húsnæðismálum; klárlega málefni sveitarfélaganna og mjög þýðingarmikil fyrir íbúa þessa lands. Húsnæðismálin eru eitt af stóru málum kjörtímabilsins en ég sé að tími minn er búinn þannig að ég verð að fá að fara aðeins betur yfir húsnæðismálin í lok umræðunnar.