153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:12]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég skil það svo að það komi tillaga við 2. umr. fjárlaga þar sem greint verður frá því hversu mikið verður tekið úr varasjóði til að leggja til þessa samkomulags. Nú þætti mér vænt um að vita hver upphæðin er en mér heyrist á öllu að hún verði ekki upplýst núna.

Mig langar líka að ræða um hlutverk sveitarfélaganna í þessu samkomulagi af því að eins og við vitum þá hafa sum sveitarfélög staðið sig betur í uppbyggingu þess húsnæðis sem hér er verið að ræða, sem þarfnast stofnframlaga og inni í félagslega kerfinu, og því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvernig hyggst ráðuneytið, og þá væntanlega í samvinnu við HMS, tryggja að sem flest sveitarfélög bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og kannski víðar, ég veit það ekki, taki þátt í þessu og axli þær skyldur sínar að byggt sé hagkvæmt húsnæði sem víðast, eins og við kölluðum það, óhagnaðardrifið og með stuðningi ríkisins vegna þess að mér hefur sýnst að hér hafi þunginn legið mest og áherslan verið mest hjá höfuðborginni okkar á meðan önnur sveitarfélög, t.d. í mínu kjördæmi, Suðvesturkjördæmi, hafi verið svolítið stikkfrí í þessari uppbyggingu. Það er mjög slæmt af því að það skapar félagslegan veruleika sem við viljum ekki hafa. Það býr til hólfaskipt samfélag en ekki samfélag og bæi þar sem fólk úr öllum tekjutíundum býr saman í samfélagi, börn ganga saman í skóla o.s.frv. Því ætla ég að inna ráðherrann eftir þessu.