fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Það er einmitt þetta með forgangsröðunina. Nú eru ansi mörg stór verkefni í gangi og mörg hafa tafist út af ýmissi undirbúningsvinnu og öðru slíku. Ég ræddi fyrr í dag mikilvægi þess að setja aukna fjármuni í undirbúning verkefna án þess að eyrnamerkja verkefnin þannig að Vegagerðin geti unnið hraðar og óvæntar tafir komi síður upp.
Ég tek undir með hæstv. ráðherra um þá þætti sem þarf að skoða varðandi forgangsröðunina; umhverfismál, öryggismál, byggðamál og þjóðhagslega hagkvæmni og allt það. En framkvæmd eins og Reykjanesbrautin uppfyllir öll þessi skilyrði, skorar hátt í þeim öllum, ásamt fleiri verkefnum. Af hverju eru sum verkefni boðin út en önnur ekki, eins og t.d. Reykjanesbraut, án þess að eitthvert samtal fari fram um það á Alþingi eða einhvers staðar annars staðar? Af hverju fréttum við það bara að það sé Reykjanesbrautin sem sé ófjármögnuð þó að fleiri framkvæmdir hafi verið dýrari en stóð til og hafi jafnvel verið á sama stað í áætluninni? Af hverju fer önnur framkvæmdin af stað en hin ekki? Hvar eru þessar ákvarðanir teknar? Við þurfum líka að ræða þessa takmörkuðu fjármuni sem fara í samgöngur. Við erum öll sammála um að við þurfum meiri peninga í samgönguframkvæmdir en hversu langt eigum við að ganga í því að Alþingi forgangsraði? Hvar er svo svigrúmið hjá framkvæmdarvaldinu varðandi tengivegi og ýmsa aðra vegi sem mikið eru til umræðu og hv. umhverfis- og samgöngunefnd er að fara að ræða um við Vegagerðina á næstu vikum?