153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:27]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ef ég má svara seinni spurningunni fyrst varðandi Sundabraut þá er hún í fullkomlega eðlilegum gangi. Umhverfismatið hófst í sumar, það er talið taka milli tvö og þrjú ár. Á sama tíma verður unnin frekari hönnun og skipulagsvinna með það að markmiði að hægt sé að bjóða þetta út og framkvæmdir geti hafist 2026. Þess vegna mátti engan tíma missa og umhverfismatið var hafið. Það er búið að vera í ferli að ráða verkefnisstjóra, verkefnisstjórn er komin yfir verkið og settur verður stýrihópur. Ég tek undir með þingmanninum að þetta er arðsamasta framkvæmd sem við getum farið í og það er líka mjög mikilvægt að fara í hana umferðaröryggislega séð og líka loftslagslega. Við munum spara 150.000 km á dag hér á höfuðborgarsvæðinu og bæta flæðið allt saman á öllu svæðinu.

Varðandi húsnæðismálin þá ætla ég líka að vísa í umræðuna sem ég átti við hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur, það er alveg rétt að í fjárlagafrumvarpinu er ekki lögð til sérstök upphæð. Það er hins vegar fjallað um það í forsendum fjárlaga að við höfum sett fjármuni til hliðar í varasjóð og við munum, í samstarfi við þingnefndir og í síðasta lagi við 2. umr. fjárlagafrumvarps, koma með tillögu um hvaða upphæðir það þurfa að vera. Samtalið sem er við HMS núna og við sveitarfélögin mun skila þeim upplýsingum að við vitum betur hvað við þurfum að setja af fjármunum í þetta. Af hverju ekki fyrr? Jú, það er vegna þess að við höfum ekki haft upplýsingar. Það hafa alls konar hlutir verið í gangi. Það er búið að vera að byggja almennar íbúðir, það er búið að byggja íbúðir í tengslum við hlutdeildarlán, aðallega reyndar úti á landi vegna þess að íbúðalóðir á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki fundist. En núna erum við að fá tæki og tól til að vita nákvæmlega hvað við erum að fara að gera og þess vegna erum við í stakk búin til að setja fram samning við sveitarfélögin þar sem við tryggjum nægjanlegan fjölda íbúða svo að hægt sé að byggja þær íbúðir sem þarf.