fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör en mig langar að snúa mér að öðru. Mig langar gjarnan að spyrja ráðherrann hvers vegna innviðaráðuneytið synjaði Vestmannaeyjabæ um stuðning til að leggja nýja vatnslögn. Aðstæður í Eyjum eru einstakar á Íslandi og ekki hægt að bera saman við önnur bæjarfélög. Það er löngu orðið ljóst að þörf er á nýrri vatnslögn til að tryggja öryggi og sjálfsögð lífsgæði Eyjamanna. Þarna leggst kostnaður á ákveðið sveitarfélag sem önnur sveitarfélög þurfa ekki að glíma við vegna staðsetningar. Þátttaka ríkisins í þessu verkefni á að vera sjálfsagður hlutur enda tók ríkið þátt þegar vatnslögnin var lögð 2008. Sú lögn er nú komin á aldur og lögnin frá 1968 er löngu ónýt. Ef vatnslögnin rofnar er ekkert annað í stöðunni en að flytja alla Eyjamenn upp á land með tilheyrandi samfélagslegum kostnaði. Þetta er stórmál. Það tekur víst eitt og hálft ár að framleiða lögnina og einungis er hægt að leggja hana í júlímánuði af ástæðum sem mér eru ókunnar. Það eru því a.m.k. tvö ár þangað til að vatnslögnin getur orðið að veruleika sem er í raun allt of langur tími. Ég vil bara skora á hæstv. ráðherra að endurskoða synjun ráðuneytisins um fjárstuðning við þessa framkvæmd og langar að vita hvernig hann tekur í það.