153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:48]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Frú forseti. Þetta er jafnframt áhugavert mál. Mér hefur verið sagt að þessi ákvörðun og þessi vinna sem Skipulagsstofnun hvatti til að yrði unnin og hefur fylgst með hafi í sjálfu sér gengið ágætlega hjá þeim sveitarfélögum sem hafa verið að vinna það í sinni aðalskipulagsvinnu eða sett þetta verkefni sérstaklega af stað. En það er rétt að það eru fjölmörg önnur sveitarfélög eftir. Þetta eru oft og tíðum margir vegir í ólíku ásigkomulagi og notaðir fyrir mismunandi hluti. Hluti af þeim myndi falla undir styrkvegafé sem við úthlutum í gegnum samgönguáætlun og ef ég man rétt tókst bara mjög vel að auka dálítið við það síðast að frumkvæði umhverfis- og samgöngunefndar í samgönguáætlun. Engu að síður eru þeir fjármunir ekki það miklir að þau gætu tekið svona landsdekkandi verkefni að sér, engan veginn. Ég veit ekki hvort við eigum að sjá fyrir okkur að sveitarfélögin þurfi einhvern sérstakan fjárhagslegan stuðning við þetta eða hvort við getum búið til einhvers konar fyrirkomulag, oft og tíðum, eins og hv. þingmaður nefnir, þegar þetta er nálægt jöklum sem eru í dag friðlýst svæði eða þjóðgarðar að stóru leyti, ekki öllu, þar sem þau þyrftu einnig að koma við sögu. Kannski væri hægt að búa til verkefni þar sem fleiri en einn aðili, ekki bara sveitarfélagið, bæri þungann af kostnaðinum, það myndu einnig hinir gera sem síðan ætla sér væntanlega að nota þetta í atvinnurekstri og þannig væri hægt að taka gjald fyrir uppbygginguna.