153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað og ræða við okkur um hans hlut í fjárlögunum. Mig langar að lýsa ánægju minni með ákveðna hluti, eins og að það sé komið nýtt hringtorg við Biskupstungnabraut sem hefur verið beðið eftir lengi og mun valda straumhvörfum á þessu svæði. Ég vil líka fagna því að það sé verið að eyða 1,5 milljörðum í tengivegi sem mun auðvitað bara stuðla að því að sveitarfélög sameinist og mörg sveitarfélög sem þegar hafa sameinast hafa beðið eftir þessum tengivegum eða þeir séu lagfærðir úr því að vera forarpollar í það að vera ökuhæfir. Mér þótti líka áhugavert að hlusta á samherja í meiri hluta ræða sín á milli um samkomulag sem þeir hefðu verið búnir að gera um 3 milljarða niðurskurð í vegaframkvæmdum. Þeir hafa samt greinilega gert samkomulag um niðurskurð í fleiru af því að það er niðurskurður á árinu 2024 um milljarð í viðbót og síðan á árinu 2025 um 1,5 milljarða þannig að frekari niðurskurðar er að vænta. Þá vil ég bara nefna Reykjanesbrautina. Ég hef ekkert gert samkomulag um að hún eigi að lenda í þessum 3 milljarða niðurskurði sem samherjar í meiri hlutanum eru búnir að sammælast um. Ég velti því fyrir mér hvers vegna Reykjanesbrautin er valin. Hvers vegna er hún ekki sett inn í fjárlögin núna sem fyrsta mál á dagskrá fyrst það er verið að slátra henni núna í sumar eins og verið er að gera? Ég vildi heyra aðeins í hæstv. ráðherra með það.