fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Varðandi fjárframlög til sóknaráætlana þá var tekin ákvörðun í þinginu að bæta 100 millj. kr. við, sem var viðbótarstuðningur vegna Covid og það er hann sem er að falla út. Það er ástæðan fyrir þessum lækkunum og síðan væntanlega aðhald eins og er á öllum liðum. Slíkir samningar þurfa þar af leiðandi sérstaka endurnýjun og áherslu. Nú kemur fjármálaáætlun á næsta ári og kannski getum við í sameiningu bætt eitthvað í. Ég er sammála því að þetta er gott verkefni.
Varðandi það sem hv. þingmaður var að lesa upp frá verkefnisstjóra Vegagerðarinnar þá, eins og ég hef sagt áður í dag, þarf Vegagerðin að hafa fjármuni svo hún geti skuldbundið verk á þessum tíma sem hv. þingmaður er að vísa til. Þá seinkuðum við hlutum, eins og ég var búinn að nefna áður; samningum, skipulagi. Í ljós kom að verkið var um 2 milljörðum dýrara en til stóð. Þá gat Vegagerðin að eigin mati ekki skuldbundið sig til að fara af stað nema það fengist meira fé og þar af leiðandi er ekki búið að bjóða Reykjanesbrautina út. En ég get fullvissað hv. þingmann um að það verður gert og verði gert fyrr en seinna, á næstu mánuðum, allt gert til að reyna að flýta því eins og hægt er. Og auðvitað ef meira fjármagn fæst þá getur þetta gengið hraðar.