fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem hún kemur með. Þessi fyrirspurn er mjög stór og á ekki bara við þann fjórðung sem hv. þingmaður nefnir oft hér á Alþingi. Það eru miklu meiri breytingar en fólk sér almennt fyrir út af hlýnun loftslags. Auðvitað finnst mörgum skrýtið að tala um hlýnun loftslags eftir sumarið í sumar en það er óumdeilt að hér hlýnar meira en annars staðar í heiminum og það hefur víðtæk áhrif, m.a. þegar kemur að ofanflóðum.
Ég hef nú bara mínútu hér, virðulegur forseti, en ég hefði viljað eiga betri skoðanaskipti við hv. þingmann eða gefa hv. þingmanni upplýsingar um að við erum að vinna að þessum málum á ýmsum stöðum, hvort sem það er varðandi þá vinnu sem var farið í núna um að meta breyttar aðstæður og líka það hvernig við nálgumst ofanflóðin og síðan bara almennt — almennt er kannski ekki rétta orðið, við getum kallað það sértækt, bara hvernig við verðum að bregðast við þegar kemur að breyttum aðstæðum út af hlýnuninni sem hefur orðið og mun verða. Þar gegna stofnanir ráðuneytisins auðvitað lykilhlutverki og sömuleiðis eru hópar til að greina það. Ég veit að við munum ná árangri, hvort sem það er með aukinni vöktun, viðbragði eða fyrirbyggjandi aðgerðum. En síðan vonast ég til þess að við getum rætt þetta hér í þingsal og líka í nefndum vegna þess að ég fullyrði að þetta er meira en augað sér og meira en fólk gerir sér grein fyrir. Við þurfum að hafa það í huga í öllum málum. Eitt er það sem snýr að okkur hér á Alþingi en það þarf líka að huga að þessu í skipulagsmálum sveitarfélaga því að þetta eru mjög miklar breytingar og mikilvægt að við ræðum þær. Þetta er forgangsmál hjá okkur í ráðuneytinu, aðlögunarmálin varðandi loftslagsbreytingar.