fjárlög 2023.
Frú forseti. Hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar segja aðgerðir í loftslagsmálum metnaðarfullar en það skýtur skökku við þegar rýnt er í fjárlög fyrir 2023. Aukið fjármagn sem renna á til loftslagsaðgerða nemur 0,04% af fjárlögum ríkisins og öll málefni sem flokkast undir umhverfismál hljóta samtals rétt rúmlega 2% af fjárlögum. Stefnur og loforð gagnast lítið ef fjármagn fylgir ekki orðunum. Eins og hv. þm. Eysteinn Ármannsson fór inn á erum við að greiða 800 milljónir fyrir losunarheimildir þar sem við uppfyllum ekki skuldbindingar okkar vegna Kyoto-bókunarinnar og það þótt við séum á undanþágu og megum losa hlutfallslega meira af gróðurhúsalofttegundum en önnur aðildarríki bókunarinnar. Þessar sektir éta upp ansi stórt hlutfall af því litla fjármagni sem fer í umhverfis- og loftslagsaðgerðir og 500 millj. kr. aukaframlag til loftslagsmála 2023 hverfur alveg inn í þessa sekt. Framlög til umhverfis- og loftslagsmála eru ekki í neinu samræmi við þann skaða sem mengandi stóriðnaður veldur og ekki í neinu samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar.
Ég ætlaði að spyrja frekar út í Kyoto-bókunina en hæstv. ráðherra hefur svarað Eysteini því. En mér leikur forvitni á að vita: Hvernig gengur að framfylgja stefnu með svo lélegum fjárlögum? Ég get ekki ímyndað mér að þú sért sáttur.
(Forseti (JSkúl): Forseti vill benda hv. þingmanni á að hún vísaði til hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar en ekki Eysteins.)