153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:42]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og vildi taka á nokkrum þáttum sem hér komu fram. Í fyrsta lagi fannst mér hv. þingmaður vera að gera lítið úr metnaðarfullum markmiðum Íslands. (ValÁ: … lítið úr fjárlögum.) Ég held að það sé skilningur fleiri. Alla vega til að hafa það alveg á hreinu eru mér vitandi ekki aðrir með metnaðarfyllri markmið. Það vantar ekkert upp á metnaðinn í markmiðunum og það er auðvitað verkefni að ná þeim. Varðandi stóriðjuna er hugmyndin sú með loftslagsmarkmiðum heimsins að við ætlum að draga úr, í okkar tilfelli erum við fyrst og fremst að líta á CO2 og við erum, eins og ég nefndi, að taka 1,3 milljónir tonna á sjö árum. Það eru allir að gera þetta. Ef menn fara þá leið, þjóðir heims, að færa það sem þeir eru núna að framleiða af gróðurhúsalofttegundum annað þá næst enginn árangur. Það verða allir að taka til heima hjá sér. Síðan þegar kemur að fjármunum þá eru auðvitað auknir fjármunir settir í þetta en ég hef aldrei litið svo á að peningar sé sama og árangur. Það sem liggur alveg fyrir er að þetta er stórt verkefni sem við þurfum að vinna með öllum. Við erum sérstaklega að horfa á atvinnulífið, því að það er það sem mun framkvæma þetta að stórum hluta, sveitarfélögin og allt Stjórnarráðið. Við erum núna að byrja á því að vinna þessa svokölluðu geiraskiptingu, þ.e. líta á hvern geira fyrir sig, vinna það með atvinnulífinu þar sem sett eru markmið fyrir hvern geira að norrænni fyrirmynd. Við erum í þéttu samstarfi við sveitarfélögin og allt Stjórnarráðið. (Forseti hringir.) Við erum líka með 615 millj. kr. meira þegar kemur að (Forseti hringir.) þessum málum. En þetta er miklu meira en peningar. Þetta er þjóðarátak. Það verða allir að leggjast á árarnar.