fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Svo við séum með það alveg á hreinu þá gengur mjög vel þegar kemur að fólksbílunum varðandi orkuskiptin. Við sjáum bara tölurnar, og það hafa verið fréttir í fjölmiðlum í sumar um innflutning á bílum, þá sjáum við hversu hátt hlutfallið er, sérstaklega þegar kemur að rafbílum og við erum enn þá númer tvö í heiminum þegar að þessu kemur. Ég er sannfærður um það að ef stjórnvöld gefa skýr skilaboð um fyrirsjáanleika þegar kemur að þessum þáttum þá mun það hafa jákvæð áhrif. Það var reyndar alveg vitað að við gætum ekki alltaf haft rafbílana algerlega lausa við það að eigendur þeirra greiddu í sameiginlega sjóði. Það er orðið þó nokkuð síðan að tekjustofninn sem við notuðum almennt í viðhald og að byggja nýja vegi hrundi, en það kom til af góðu, það var vegna þess að fólk var að fjárfesta í vistvænum bílum og ég tel afskaplega mikilvægt að það séu rafbílar. Þetta fer eftir því hvernig við vinnum úr þessu á næstunni og á næstu misserum. Það fer eftir því. Skilaboðin sem ég gef eru bara mjög skýr; fyrirsjáanleiki er eitt það allra mikilvægasta. Auðvitað fleira. Bílaleigubílar eru náttúrlega mjög hátt hlutfall af bílum á Íslandi þannig að ef við gæfum okkur að þeir yrðu allir rafbílar myndi það breyta hlutunum mjög hratt. Síðan eru stóru bílarnir eftir. Þessi þróunin er mjög hröð og við eigum alla möguleika á því að vera meðal þeirra fremstu og þar viljum við vera. Það mun bara koma í ljós eftir því hvernig við vinnum úr þessum hlutum, og það er undir okkur stjórnvöldum komið. Ég held ég þurfi ekki að útskýra það, en ég vil samt árétta: Fyrirsjáanleiki er lykillinn að árangri.