fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég átti góðan fund með Neyðarlínunni og þessum aðilum fyrir þinglok í vor og fagna því auðvitað að menn séu að reyna að ná utan um þetta og taka höndum saman um samstarf af þessu tagi. En ég var í rauninni, í þessari fjárlagafrumvarpsumræðu, að spyrja um fjárframlög úr sjóðum hæstv. ráðherra, þetta er hennar svið, þ.e. hvort gert sé ráð fyrir framlögum til þess að þetta megi gerast hratt og örugglega. Það eru auðvitað mörg svæði þarna sem teljast ekki beint hagkvæm fyrir fyrirtæki í einkarekstri og þau þurfa kannski að leita eftir opinberu fé til að þetta megi takast, öryggisins vegna. Þetta er órjúfanlegur hluti af uppbyggingu og viðhaldi innviða á Íslandi, rétt eins og rafmagn og vatn.