fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Já, það er ýmislegt fjármagn að fara í hina ýmsu uppbyggingu og styðja við uppbyggingu þar sem er markaðsbrestur. Við sjáum að tekjur vegna tíðniúthlutunar næsta árs munu að óbreyttu renna í fjarskiptasjóð. Fjarskiptasjóður rennur þó út um þessi áramót og ákveða þarf afdrif hans í frumvarpi sem ég kem með fyrir þingið í haust og þar verður allt gert til þess að styðja við þá staði þar sem er markaðsbrestur og styðja við fyrirtæki á farsímamarkaði að fara í þá uppbyggingu. Það hefur gengið vel hingað til með ljósleiðaravæðingunni og bara í dag bárust fréttir af því að Míla væri að leggja ljósleiðara til rúmlega 50 heimila á Flateyri á árinu. Það hefur verið kallað eftir þessu á ýmsum smærri þéttbýlisstöðum. Við höfum því fjármagn í gegnum tíðniúthlutunina og við erum auðvitað líka að forgangsraða fjármunum innan fjarskiptamálanna til að tryggja það að ná þeim árangri sem að er stefnt, að hér séu alls staðar örugg fjarskipti og nettenging með miklum sóma.