fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Framlög til sjóðanna, bæði Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs, voru hækkuð gríðarlega í tengslum við Covid-aðgerðir stjórnvalda og þau voru í sögulegu hámarki árin 2021–2023 sem skilaði sér í fleiri styrkveitingum. Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að 75% af þessari upphæð, þ.e. hækkuninni til sjóðanna, verði áfram til staðar og mér finnst það vera til marks um áframhaldandi áherslur stjórnvalda um að efla vísindastarf og nýsköpun enda sjóðirnir ekki að fara til baka í fyrra horf. Síðan höfum við forgangsraðað því að halda endurgreiðslunum vegna rannsókna og þróunar sem er einnig gríðarlega mikilvægt.
Ég heyri síðan hvað hv. þingmaður segir um Íslandsstofu og samstarf og þetta er gríðarlega mikilvægt. Ég á í miklu og góðu samstarfi við Íslandsstofu í hinum ýmsu aðgerðum og vangaveltum um hvernig við getum gert betur í að segja frá Íslandi og koma á mikilvægum tengingum vegna nýsköpunar en að því sögðu, vegna þess sem hann nefndi í lokin um nýliðun í hópi fjárfesta, þá er þetta rétt athugasemd hjá hv. þingmanni og er það til skoðunar í ráðuneytinu. Við erum að skoða hvernig allt fjárfestingarumhverfi nýsköpunar er í dag og hvernig það þarf að breytast af því að það þarf auðvitað líka að vera sveigjanlegt. Þegar Kría var sett á fót var umhverfi nýsköpunar bara allt öðruvísi, staða fyrirtækja allt önnur og sjóðaumhverfið var líka allt annað. Þá var gríðarlega mikil þörf á að stíga það skref sem var tekið þá. En síðan gerðust ótrúlegir hlutir í nýsköpunarumhverfi á Íslandi og við erum kannski á þeim stað að við erum búin að hlaupa mjög hratt í þá átt að verða samkeppnishæf við aðrar þjóðir og nú þurfum við svolítið að sjá hvar við eigum að forgangsraða. Hvað vantar okkur? Hvar erum við enn þá að missa bolta? Við getum líka verið mjög glöð með þann stað sem við erum á, en við ætlum aldrei að stoppa þar og þar erum við hv. þingmaður alveg hundrað prósent sammála, við eigum að stefna enn þá hærra.