153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:50]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð svör og ánægjulegt að heyra að hún ætlar að taka á þeim málum sem ég var að nefna. Mig langar að benda hæstv. ráðherra á að það var mikil og góð vinna lögð í það innan utanríkisráðuneytisins fyrir svona tveimur árum að kanna hvernig hægt væri að bæta tengslin, t.d. við Kísildalinn. Ef hæstv. ráðherra talar við kollega sinn sem var einu sinni utanríkisráðherra þá er eflaust hægt að finna nóg af góðum hlutum þar. Ég treysti því líka að hæstv. ráðherra nýti sér þá þekkingu og þann hóp sem er hér í dag í nýsköpunarsamfélaginu og hlusti á hvað það er sem við þurfum að gera til að gera þessar breytingar eins og t.d. með fjárfestana.

Mig langaði að nota seinni hlutann í að spyrja hæstv. ráðherra um græna nýsköpun en ein af áherslum ríkisstjórnarinnar er að efla hana eða nýsköpun tengda loftslagsmálum. Því miður, þrátt fyrir að um þetta sé mikið talað, hef ég ekki tekið eftir, a.m.k. ekki í þessum þykka doðranti sem við fengum, sem við köllum fjárlög, neinni aukningu í fjármagni tengdu grænni nýsköpun. Það er enn þá verið að setja 100 milljónir á ári í loftslagssjóð og 100 milljónir þegar kemur að grænni nýsköpun er ekki einu sinni dropi í hafið. Við sjáum það best á þeim upphæðum sem t.d. Carbfix-verkefnið og önnur verkefni hafa verið að fá sem nema hundruðum milljóna; við erum meira að segja með í dag stefnumótaforrit sem fær 1,4 milljarða. Þetta eru tölur sem eru allt of lágar. Hvar eru plönin hjá hæstv. ráðherra um að keyra áfram græna nýsköpun?