fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég naut liðsinnis góðs fólks við að koma Listaháskólanum á þann stað sem hann er kominn núna. Það var gaman að sjá hve vel það var unnið og skynsamlega. Varðandi samstarfssjóðinn þá er unnið að sérstökum verklagsreglum um úthlutun úr honum en fjármálaráðherra hefur líka gefið út reglugerð um styrkveitingar ráðherra þar sem kemur skýrt fram hvernig að honum verður staðið. Hér er um að ræða forgangsröðun á fjármunum sem ekki var gagnsæ áður; ekki var jafnræði áður og heldur engar hvatningar eða mælikvarðar um árangur. Ég er því að forgangsraða öllum fjármunum í þennan sjóð til að tryggja gagnsæi, til að tryggja jafnræði skólanna að þeim og til að setja skýr forgangsmál á áætlun og búa til fjárhagslega hvata fyrir skólana til að stíga þau skref hraðar. Þar eru talin nokkur atriði, sem eru ákveðnar greinar, fjarnámið, minni yfirbygging, aukin gæði á háskólanámi, t.d. í doktors- og meistaragreinum, þar sem við verðum að stíga skref ef við ætlum að vera samkeppnishæf í heiminum. Ég held að það sé góð hugmynd að sjóðurinn dekki líka nám fatlaðra einstaklinga, ef hægt er að koma sér í samstarf um að bjóða upp á fjölbreyttara nám. Við mennta- og barnamálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra erum að vinna að menntatækifærum fyrir fatlað fólk og ég vonast til að eitthvað meira komi út úr því enda er þar um stórt verkefni að ræða. Þar verðum við að bjóða upp á fjölbreyttari námsleiðir. En varðandi sjóðinn þá held ég að við séum að stíga mjög gagnsætt skref með skýrum árangursmælikvörðum gagnvart þeim úthlutunum sem úr honum munu koma fyrir háskólastarf í landinu.