153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:06]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar í kjölfarið að spyrja hvort ekki geti verið hætta á því að fjármagnið úr sjóðnum nýtist með þessum hætti ekki beint til háskólanna heldur renni fjármagnið frekar til fyrirtækja, líklega mest í einkarekstri, í formi aðkeyptrar þjónustu, svo sem vegna hugbúnaðar, greininga eða annars á kostnað innviða háskólanna sjálfra.