153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:09]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjárlög fyrir árið 2023 og þau málefnasvið sem heyra undir ráðuneyti mennta- og barnamála. Ég ætla aðeins að hlaupa yfir það hér en dvelja lengst við málefni framhaldsskóla vegna vinnu sem við erum að setja af stað þar.

Í fyrsta lagi er um að ræða málefnasvið 18, sem eru menning og listir og íþrótta- og æskulýðsmál, og heyra íþrótta- og æskulýðsmálin undir ráðuneyti mennta- og barnamála. Hvað þau mál varðar þá eru ekki miklar útgjaldabreytingar á milli ára en þó eru ákveðin verkefni sem eru að koma þar inn, eins og til að mynda undirbúningur þjóðarleikvangs og fjármagn vegna hans, 100 millj. kr. Það verkefni er komið af stað, skulum við segja, framkvæmdanefnd er komin í gang sem er að vinna að þeim málum.

Síðan er það málefnasvið 20, sem er framhaldsskólastigið, sem ég ætla að koma aðeins inn á á eftir, og málefnasvið 22, sem eru önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála. Þar undir er talsvert útgjaldasvigrúm, ný verkefni sem eru að fara af stað þar. Þar ber helst að nefna innleiðingu menntastefnu, en þar eru um 200 milljónir vegna hennar á næsta ári og næstu árum og mjög fjölbreytt verkefni þar undir sem miða að því að gera breytingar á menntakerfi okkar, efla stöðu kennara, endurskoða eða endurhugsa allt geðheilbrigði í skólum, byggja upp heildstæða skólaþjónustu þvert á skólastig o.s.frv.

Varðandi málefnasvið 29, sem eru fjölskyldumál, þá deilum við því málefnasviði með fleiri ráðuneytum, en þar er talsverð aukning á fjármunum milli ára í því sem heyrir undir ráðuneyti mennta- og barnamála. Bæði er þar inni allt það fjármagn sem er vegna innleiðingar á nýjum farsældarlögum og breytingum í málefnum barna, um 2 milljarðar, eða 1,5 milljarðar vegna þess að hluti fór inn í jöfnunarsjóð og rennur til sveitarfélaga. Það fjármagn er inni sem við þörfnumst til þeirra verka á næsta ári. Sú vinna gengur vel og er að koma aukinn slagkraftur í hana. Fjögur sveitarfélög, svona forystusveitarfélög, eru að innleiða lögin. Við erum að klára reglugerðir um tengiliði og málastjóra sem hafa verið í vinnslu þannig að það er allt að komast af stað. Síðan er aukið fjármagn m.a. til barna með fjölþættan vanda. Þar er vinna í gangi undir forystu Haraldar Líndals, sem allir hlutaðeigandi aðilar koma að til að forma það hvernig við tökum utan um það með nýrri nálgun og nýrri hugsun í samstarfi við sveitarfélögin. Þarna er verið að vinna með þyngstu málin sem varða börn, eins og hefur verið talsvert í umræðunni og við væntum tillagna í því efni í næsta eða þar næsta mánuði.

En mig langaði að koma aðeins inn á framhaldsskólastigið sérstaklega. Það eru kannski ekki miklar breytingar þar hvað varðar fjárveitingar og fjárheimildir heldur eru þetta fyrst og síðast verðlagsuppfærslur og annað því um líkt, þó að það séu einhverjar breytingar, einhverjir nýir fjármunir. En mig langaði að koma inn á það sem við erum að gera og óska eftir góðu samstarfi við fjárlaganefnd um, en við erum að hefja vinnu við að opna reiknilíkan um framhaldsskólana. Það hefur verið í þróun í talsverðan tíma og við teljum að nú sé rétti tímapunkturinn til að opna þetta líkan og fara í samstarf og samvinnu við alla skólana hringinn í kringum landið. Ég átti fund með öllum skólameisturum í byrjun þessarar viku þar sem við boðuðum það að við ætluðum að setjast niður með hverjum og einum skóla með það að markmiði að fullmóta þetta reiknilíkan næstu 12 mánuðina og markmiðið er að það verði opið eftir það. Ráðuneytið er að byrja núna bara í næstu viku að funda með hverjum og einum framhaldsskóla þannig að hver og einn skóli geti sett sig inn í líkanið. Í framhaldi gerum við ráð fyrir vinnufundi með öllum skólameisturum og hagaðilum þar sem við fullmótum reiknilíkanið, gerum breytingar á því mögulega í framhaldinu og að fyrir fjárlög 2024 verði þetta reiknilíkan „tilbúið“, ég hef það innan gæsalappa vegna þess að reiknilíkön eru jú aldrei tilbúin. Þá eiga allir að hafa séð það eða gert athugasemdir og við unnið úr þeim. Ég vænti samstarfs við þingið í þessari vinnu vegna þess að við erum að útdeila í gegnum reiknilíkanið um 35 milljörðum og það er fullkomlega eðlilegt að við höfum öll skoðun á því, sérstaklega þingið og fjárlaganefnd þingsins. (Forseti hringir.)

Síðan hlakka ég bara til umræðunnar og spurninganna hér á eftir.