153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:14]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. Helsta kosningaloforð Framsóknarflokksins fyrir síðustu alþingiskosningar var vaxtarstyrkur fyrir börn, 60.000 kr. styrkur til frístundaiðkunar. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er ekki minnst á slíkan styrk. Í fjárlögum ársins 2022 var slíkan styrk hvergi að finna, heldur ekki í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, það er ekkert um þetta í þingmálaskrá og ekkert í fjárlagafrumvarpinu sem við erum að ræða hér í dag. Ég er með tvær einfaldar spurningar til hæstv. barnamálaráðherra:

1. Mun Framsóknarflokkurinn standa við þetta kosningaloforð? Þetta er bara einföld spurning, já eða nei.

2. Hvenær á kjörtímabilinu verður þessum styrk komið á?