153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:15]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Já, við hyggjumst vinna að þessu máli. Það er ekki svo að það sé í yfirstandandi fjárlagafrumvarpi, m.a. vegna þess að við erum að glíma við verðbólgu og útgjaldaaukning er minni en við gerðum ráð fyrir þegar við fórum af stað. Það er þó útgjaldaaukning til allmargra málaflokka og m.a. höfum við fjárheimildir innan bæði málefnasviðs fjölskyldumála, sem eru barnamálin, og innan íþrótta- og æskulýðsmála til að vinna að undirbúningi þessa máls og það er það sem við hyggjumst gera, vinna með íþróttahreyfingunni að undirbúningi þessa máls. Það er ekki gert ráð fyrir því að við ljúkum því máli á yfirstandandi löggjafarþingi en við gerum ráð fyrir að undirbúningurinn að því með hvaða hætti þetta verður gert, með samtali við íþróttahreyfinguna, sveitarfélögin og fleiri, verði unninn á yfirstandandi ári. Þannig að svarið við spurningunni er já. Við hyggjumst standa við þann vaxtarstyrk. Það kemur fram í stjórnarsáttmála að unnið verði að slíku og það er á verkefnasviði mínu sem ráðherra að vinna að því. Það er í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem hefur verið birt yfir aðgerðir, með hvaða hætti það er og í hvaða farvegi það er og ráðherrann sem hér stendur mun vinna að því á kjörtímabilinu.