153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:17]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka þokkalega skýr svör. (Menntmrh.: Aldrei ánægður með mig.) Jú, jú, þetta var bara þokkalega skýrt. En ég minni nú á að það er til einfaldari leið sem er farin á hinum Norðurlöndunum sem er sterkt og almennt barnabótakerfi. En að öðru. Börnum á biðlistum hefur fjölgað og biðtíminn lengst og lengst síðan hæstv. barnamálaráðherra tók við embætti árið 2017. Ég ætla nú samt ekki honum að vera orsök vandans, en það hlýtur að koma að verulegu leyti í hans hlut að skapa ramma og grípa til aðgerða til að taka á þessu. Í kringum síðustu áramót átti ég orðaskipti við hæstv. ráðherra um Þroska- og hegðunarstöð, sem nú heitir Geðheilsumiðstöð barna. Þar er tekið á móti börnum með ADHD, einhverfu, kvíða, hegðunarvanda og fleira. Þar voru 738 börn á biðlista. Núna eru þau 830 og meðalbiðtíminn sá sami. Við ræddum líka um Greiningar- og ráðgjafarstöð sem heyrir undir hæstv. ráðherra. Þá voru þar 326 börn á biðlista. Núna eru þau samkvæmt nýjum tölum sem umboðsmaður barna birti í dag eða í gær 393. Ég vildi bara spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig verður tekið á þessu? Hvenær má þess vænta að þessi biðlisti hjá þessari stofnun, sem heyrir undir hann, hætti að lengjast? Verður þessari stofnun hlíft við aðhaldskröfu og koma einhverjar aukafjárveitingar? Og ef ekki, er hægt að leysa þennan vanda án þess að setja aukið fé til þessara mála?