153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:19]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af stöðunni í þessum málum. Varðandi biðlistana almennt þá er það svo að jafnvel þó að við myndum í sumum tilvikum bæta við fjármunum — vegna þess að við höfum gert það, við höfum bætt við fjármunum og við höfum svigrúm á sviðinu sem er fjölskyldusvið, eins og ég rakti hér, talsvert svigrúm til að bregðast við bæði biðlistum í greiningar en líka í þau úrræði sem hv. þingmaður nefndi. Við höfum verið að vinna greiningarvinnuna að því hvernig væri hægt að bregðast þar við. Við höfum til að mynda sett fjármagn til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar en það kemur til baka vegna þess að þau hafa ekki fundið fagfólk. Þau fá ekki fagfólk til að sinna þessu. Ég held að staðan almennt varðandi þessa viðkvæmari hópa barna sé sú að við þurfum að fara jafnvel í miklu dýpri vinnu en við gerðum ráð fyrir þegar við áttum þessi orðaskipti. Sú vinna þarf að felast í því að leysa þetta, þ.e. við þurfum fleira fagfólk. Við þurfum samtal við háskólana. Það samtal er byrjað við háskólaráðuneytið. Það gerist auðvitað heldur ekki á einni nóttu. Varðandi þessi mál þá þurfum við bráðaaðgerðir og þá þurfum við að læsa saman þessum stofnunum. Það erum við að undirbúa og höfum verið að kortleggja það og undirbúa að setja af stað vinnu jafnvel með verkfræðingum sem geta komið að því með okkur að hugsa ferlana á milli allra þessara stofnana upp á nýtt. En síðan þurfum við að fara í almennt átak við að laða að fólk til að mennta sig í þeim greinum sem þarna heyra undir. Það er mjög sorglegt þegar við erum að horfa upp á það að jafnvel fjármagnið eitt dugir ekki til og við því þurfum við að bregðast. Það á raunar við um fleiri þjónustustörf í málefnum barna. Þetta er í rauninni það sama og við erum að horfa upp á í kennaramálum. Þar höfum við náð ákveðnum árangri. (Forseti hringir.) Þannig að svarið við spurningunni er að við erum að undirbúa bráðaaðgerðir, erum með fjármagn í það. (Forseti hringir.) En stóri vandinn er að fá fleiri til að koma og starfa í þessum greinum sem eru að þjónusta börn og ungmenni.