153. löggjafarþing — 3. fundur, 15. sept. 2022.
fjárlög 2023.
1. mál
Herra forseti. Eins og fram hefur komið hefur hæstv. mennta- og barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason nú átt fundi með skólameisturum framhaldsskólanna vegna reiknilíkans sem verið er að breyta, en líkaninu er ætlað að reikna út kennslukostnað framhaldsskóla. Það virðist sem svo að fjármunir til þessa í fjárlagafrumvarpinu séu lægri en á yfirstandandi ári. Getur ráðherrann útskýri þetta aðeins nánar?