fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég biðst afsökunar á að hafa gagnrýnt tímaskort hér áðan. Það er vissulega rétt að maður hefur bara tvær mínútur. Það var tvennt sem mig langaði líka að koma inn á hér, þættir sem hafa sannarlega áhrif á þetta sem ekki snúast um fjármagn. Í þriðja lagi, til viðbótar við það sem ég nefndi áðan, er það innritunin. Oft og tíðum eru margir sem skrá sig í nám í ákveðnum skóla. Kannski hittist þannig á að sumar námsgreinar eru kenndar í jafnvel þremur skólum á höfuðborgarsvæðinu. Kannski hittist þannig á að það er fullt í einum skóla sem viðkomandi sækir um í. Þá fær hann einfaldlega höfnun þar en það getur verið laust pláss í hinum tveimur skólunum í umrædda iðngrein. En það er ekkert sem tryggir að það sé samtal og sagt: Heyrðu, það er fullt hér en þú getur farið í þessa tvo skóla. Við erum að skoða hvort við getum stigið einhver skref til að samræma þetta vegna þess að þarna held ég að við gætum nýtt kerfið okkar betur. Síðan í fjórða lagi erum við að skoða hvort við getum sett af stað vinnu sem snertir það þegar eldri nemar koma í iðnnám, eru kannski búnir að klára stúdentspróf eða aðra menntun, jafnvel búnir að vera úti á vinnumarkaðinum í einhverjum öðrum greinum og koma síðan og vilja bæta við sig iðnmenntun. Við erum að skoða hvort við getum nálgast þessa nema með einhverjum öðrum hætti, eflt raunfærnimat, farið einhverjar styttri leiðir án þess þó að slá af gæðakröfum gagnvart þessum nemum. Við erum að skoða hvort við getum brugðist þar við vegna þess að það myndi líka létta á skólunum sem um ræðir. En ég held að það sé mjög jákvætt að unga fólkið virðist vera að sækja meira í iðnnámið og það er þess vegna sem umræðan er svo mikil um þá eldri sem ekki komast að af því að skólarnir eiga að taka fyrst inn þá sem yngri eru. Það er m.a. vegna þess að það er jákvæðari umræða um iðngreinarnar. En að öðru leyti vil ég þakka þingmanninum fyrir brýninguna og vonast eftir góðu samstarfi við hann og fleiri hér á þinginu um þessi mál.