Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

lengd þingfundar og fyrirkomulag fjármálaumræðu.

[09:33]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Samkomulag er um það milli forseta og þingflokksformanna að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp segja til um ef þörf krefur, eða þar til síðari hluta 1. umr. um fjárlög 2023 er lokið.

Í dag verður haldið áfram umræðu um fjárlagafrumvarpið þar sem fagráðherrar taka þátt í umræðunni um sína málaflokka. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Ráðherrar hafa fimm mínútur til framsögu. Eftir það getur einn þingmaður frá hverjum þingflokki beint fyrirspurnum til ráðherra og hefur til þess tvær mínútur tvisvar sinnum. Þá geta þingflokkar ákveðið að tveir þingmenn tali frá flokki en þá aðeins í tvær mínútur hvor. Andsvör eru ekki leyfð.

Röð ráðherra verður eftirfarandi: Forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, heilbrigðisráðherra, matvælaráðherra, menningar- og viðskiptaráðherra og að lokum fjármála- og efnahagsráðherra sem staðgengill utanríkisráðherra. Við lok umræðunnar talar fjármála- og efnahagsráðherra að nýju og hefur til þess tíu mínútur. Þar á eftir tala talsmenn þingflokka sem hafa tíu mínútur hver og að endingu verða lokaorð ráðherra fimm mínútur.