153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[09:50]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að spyrja um þetta. Endurskipulagning ráðuneyta, fjölgun ráðuneyta, tilfærsla á verkefnum á milli þeirra, var liður í þeirri hugsun að við værum að auka samhæfingu milli ólíkra ráðuneyta og stofnana og að stjórnkerfið væri sveigjanlegt. Eins og kom fram þegar ég fylgdi þeim málum úr hlaði í þessum sal þá teljum við ekki að þessi ráðuneytaskipting eigi endilega að vera klöppuð í stein til allrar framtíðar heldur að það sé einmitt aukinn sveigjanleiki innan stjórnkerfisins. Hv. þingmaður spyr hér um kostnað við þessar breytingar og vissulega var viðbótarkostnaður sem gerð var grein fyrir við upphaf verkefnisins. Það er ekki búið að taka saman hver staðan verður. Það verður gert upp í lok árs. En það var horft til þess að kostnaður vegna fjölgunar um eitt ráðuneyti væri 190 milljónir en kostnaður við fjölgun ráðuneyta væri minni en tvöfaldur kostnaður, enda fjölgar ráðherrum þá einungis um einn af því að það voru ráðherrar sameiginlega í ráðuneytum í fyrra fyrirkomulagi og því ekki viðbótarkostnaður vegna aðstoðarmanna, ritara og bílstjóra nema vegna eins ráðherra. Það er þannig tiltekinn kostnaður.

Sömuleiðis vil ég nefna það hér að það hafa auðvitað verið viðbótaráskoranir við rekstur Stjórnarráðsins vegna húsnæðismála þar sem ráðuneyti hafa lent, eins og víða annars staðar í samfélaginu, í myglu, þannig að við erum með ráðuneytið núna í tímabundnu húsnæði sem ég vil vekja athygli þingsins á. Það er verið að vinna að framtíðarlausnum á húsnæðismálum ráðuneyta. Markmiðið í því, af því að hv. þingmaður spyr, er að langtímasýnin sé sú að við séum með minna húsnæði og aukinn sveigjanleika í því. Fjölgun starfsmanna er sömuleiðis óveruleg, þ.e. áætlanir okkar gerðu ráð fyrir því að fjölgun starfsmanna væri óveruleg en hún er auðvitað breytileg, (Forseti hringir.) ég nefni sem dæmi að starfsmönnum forsætisráðuneytisins fækkaði af því að verkefni voru færð yfir til dómsmálaráðuneytisins. Það þýðir ekki að verkefnin (Forseti hringir.) séu farin eða að starfsmönnum hafi fækkað í heild sinni. En ég get farið betur yfir þetta í síðara svari.