fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir greinargóð svör í þessu. Það er auðvitað mikilvægt að skoða hvað þarf til að auka fjölbreytni á íslenskum fjármálamarkaði. Við getum nefnt hugmyndir um samfélagsbanka eða slíkt fyrirkomulag, þær hafa auðvitað lengi verið til umræðu og m.a. hjá mínum flokki, Framsókn. Fyrst og fremst er þó mikilvægt að hér á landi sé heilbrigt fjármálakerfi þar sem þjónustutekjur verði ekki of háar. Mikilvægt er að þeir bankar sem starfa á íslenskum markaði fái nauðsynlegt aðhald. Á síðustu árum, við sjáum það bara, hafa þessir bankar verið að skila gríðarlega miklum hagnaði og gera enn, nú með aukinni verðbólgu, vextir hafa rokið upp með tilheyrandi kostnaði fyrir heimili landsins. Í þessu sambandi vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji að bankakerfið á Íslandi sé heilbrigt og sé hliðhollt heimilum landsins, styðji nægilega vel við þau, nú þegar við sjáum að upp kemur staða þar sem vextir hækka og lán heimilanna hækka, jafnvel um tugi þúsunda á hverjum mánuði o.s.frv. Spurningin er í raun og veru þessi: Er bankakerfið á Íslandi heilbrigt og hliðhollt heimilum og fyrirtækjum?