153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[10:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Staðan er auðvitað sú að verðbólgan, eins og hv. þingmaður sagði réttilega, er alls staðar á fleygiferð og víðast hvar hærri en hér. Ég myndi telja að við værum fyrst í vanda ef við horfðum á sama tíma fram á samdrátt í efnahagslífi eins og margar af nágrannaþjóðum okkar gera, horfa á sama tíma fram á samdrátt í efnahagslífi og vaxandi verðbólgu. Vaxtastigið — og hv. þingmaður, ég kem aðeins inn á það á eftir. En hv. þingmaður nefnir hér sérstaklega krónutölugjöldin og áhrifin á vísitölu upp á 0,2%, er það slæmt fordæmi? Við erum að halda í verðgildi þessara tekjustofna. Ég tel, eins og ég ítrekaði áðan, þegar við erum að tala um áfengis- og tóbaksgjöld, að við séum ekki að leggja gjöld á nauðsynjavörur. Það má kannski deila um það. Ég finn hér brennandi augnaráð einhverra þingmanna en ég segi það samt hér að það er mín afstaða. Þessir stofnar hafa rýrnað að verðgildi undanfarin ár, þeir hafa rýrnað að verðgildi. Þegar kemur að húsnæðismarkaðnum þá skal ég vera fyrst til að viðurkenna að þegar við skoðum í raun og veru hvatana fyrir verðbólguþróuninni er húsnæðismarkaðurinn að mínu viti það sem við getum raunverulega haft mest áhrif á. Bæði markaðinn sjálfan en líka afleidd áhrif af sveiflum á húsnæðismarkaði á verðbólgu og efnahagsmál. Það er auðvitað svo að framboð af húsnæði hefur ekki verið nægjanlegt. Það hefur ekki fylgt mannfjöldaþróun. Auðvitað kom hér stopp í uppbyggingu eftir hrun og við höfum verið að takast á við það stopp í raun og veru allan tímann síðan. Það er bara þannig.

Ég nefndi hér áðan á harðahlaupum að sjaldan hafi verið jafn mikið byggt og á undanförnum tveimur árum, en samt höldum við ekki í við mannfjöldaþróun. Þess vegna tel ég að það sé gríðarlega mikilvægt þar sem boð hefur verið um samstarf ríkis og sveitarfélaga að við beitum félagslegum aðgerðum til að auka framboð á húsnæði þannig að við getum í raun dregið úr sveiflunum sem þessu fylgja.

Svo vil ég geta þess að þættinum hefur borist málfarsábending. (Forseti hringir.) Verðbólga er mikil eða lítil en ekki há eða lág [Hlátur í þingsal.]. Ég tek það til mín og bið hv. þingmenn að gera slíkt hið sama.