fjárlög 2023.
Herra forseti. Nú er staðan sú að allmörg ráðuneyti eru í bráðabirgðahúsnæði. Það er verið að gera upp Sjávarútvegshúsið við Skúlagötu og a.m.k. fjögur ráðuneyti eru í skammtímahúsnæði. Stefna Stjórnarráðsins í húsnæðismálum, sem hefur verið alllengi við lýði, er að Stjórnarráðið byggist upp í miðbænum. Og af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um utanríkisráðuneytið þá liggur það fyrir að utanríkisráðuneytið, sem er uppi á Rauðarárstíg utan við þennan kjarna, mun missa hluta af sínu húsnæði sem það er með í leigu á næsta ári. Því liggur algerlega fyrir að finna þarf nýtt húsnæði fyrir utanríkisráðuneytið. Hluti af nýbyggingunni á Austurbakka hefur verið þar til skoðunar, það er ekkert frágengið í þeim efnum, en þetta hefur verið til skoðunar. Einnig er verið að skoða mögulega aðra kosti eftir því hvað er hagkvæmast fyrir ríkið, til að valda ekki þenslu og gera hlutina með eins hagkvæmum hætti og mögulegt er en þó í samræmi við þá stefnu að við séum með Stjórnarráðið á þessum reitum í miðborginni. Þannig að þetta er staðan.
Eins og ég kom að áðan þá hefur hins vegar viðbyggingu við Stjórnarráðið, þar sem forsætisráðuneytið er til húsa, enn og aftur verið slegið á frest. Það er verið að vinna að endurgerð gamla Hæstaréttarhússins að innan sem verður nýtt í framtíðinni, væntanlega fyrir einhver ráðuneyti, þannig er verið að reyna að finna lausnir til lengri tíma. Það hafa sömuleiðis staðið yfir viðgerðir á öðrum húsum og ég nefni það bara hér, af því að hv. þingmaður spyr um húsnæðismál ráðuneyta, að það er líka ljóst að ráðast þarf í einhvers konar viðgerðir á húsnæði umhverfisráðuneytisins. Þetta er heljarinnar verkefni. Markmiðið er að við séum með færri fermetra og sveigjanlegra húsnæði til lengri tíma, og að við séum á þessum stað. Þess vegna hefur Austurbakki verið til skoðunar.