153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[10:56]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Já, meiri fyrirsjáanleiki til framtíðar. Ég tek heils hugar undir með hæstv. ráðherra, orð hans hér á undan. Umræðan um löggæsluna hefur hins vegar verið sú að það vanti meira til þess að geta beitt að fullu þeirri mönnun sem við þurfum að hafa á landsbyggðinni og í almennri löggæslu á höfuðborgarsvæðinu sem er mjög þung. Verkefnin eru þung og við erum að missa lögreglumenn úr almennri löggæslu yfir í önnur verkefni því að álagið er of mikið. Ég hef áhyggjur af því að við séum ekki með nógu mikinn fyrirsjáanleika. Og hvað með framtíðarsýnina og öryggi íbúa? Það er meiri harka, meiri og þyngri áskoranir í löggæslu. Ég fagna því að það séu meiri framlög til vinnu gegn skipulagðri brotastarfsemi og ég tel að það sé mikil bót. Ég held að með minni framlögum til löggæslunnar muni það bitna á frumkvæðislöggæslu líkt og hraðamælingum, grenndargæslu o.fl. Það var mín einlæga von að þeir fjármunir sem voru settir aukalega frá fjárlaganefnd fyrir þetta ár myndu haldast fyrir næsta ár. En það var kannski bara mín einfeldni. En hvað réttlætir það að við höldum ekki þeim fjármunum sem voru settir í þetta á þessu ári? Ég veit að þetta var einskiptisaðgerð en ég tel mikla þörf á því að við höldum þessu áfram og ég velti fyrir mér: Hver er sýn ráðherra á það?