153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:08]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mér finnst svörin eiginlega bera með sér að það hafi ekki verið hugsað út í þetta. Hæstv. ráðherra segir að þetta sé í þokkalegum farvegi. Ég vil eiginlega bara mótmæla því miðað við þau viðmið sem hér er verið að ræða um. Ég skil ekki alveg hvernig þetta hefur verið rýmkað ef þetta eru upphæðirnar sem verið er að miða við, 321.000 kr. á mánuði fyrir einstaklinga. Þá eru ekki margir sem eiga kost á gjafsókn.

Ég veit ekki hvort hæstv. dómsmálaráðherra gerir sér yfirleitt grein fyrir því hversu gríðarlega veik réttarstaða einstaklinga er ef brotið er á þeim. Ég vil kannski meina að þörfin myndi minnka fyrir rest ef þessi fyrirtæki, stórfyrirtæki sem oft, eins og ég segi, beita sínum gríðarlegu yfirburðum til að valta yfir réttindi einstaklinga sem geta ekki reist hönd sér til varnar — þörfin myndi kannski minnka eftir smátíma ef fleiri gætu leitað réttar síns, ef það væri tryggt. Ég vil alla vega gjarnan líta þannig á að svo gæti farið vegna þess að þessi fyrirtæki, eins og staðan er í dag, vita að það verður ekki farið gegn þeim og það er gríðarlega alvarlegt. Í þessum málum á frekar að leyfa neytendum samkvæmt lögum að njóta vafans og gefa þeim kost á að leita réttar síns.