fjárlög 2023.
Forseti. Það má vel vera að þessi viðmið þyki lág. Útgjöldin eru, eins og fram hefur komið, tæpir 4 milljarðar, en þau eru, eins og ég sagði áðan, sveiflukennd. Viðmiðin eru uppreiknuð miðað við verðlag á hverju ári eins og staðan er í dag. Eins og ég sagði áðan, það er ekkert útilokað af minni hálfu að endurskoða þurfi þessi mál að einhverju leyti.
En hv. þingmaður nefnir réttarstöðu þeirra sem þurfa að glíma við, eins og það er orðað, stórfyrirtæki — að þeir séu mjög undir í réttarkerfinu og stórfyrirtæki viti að ekki sé farið í þau, eins og það var orðað. Ég held nú að í slíkum málum séu hagsmunir mjög víðtækir. Þeir eru kannski ekki endilega persónulegir þótt það geti líka verið í einhverjum tilfellum, en þarna koma væntanlega inn öflug samtök neytenda, öflug samtök verkalýðsfélaga sem væru þá að gæta einhverra hagsmuna þarna á móti. Ég átta mig ekki alveg á þessari stöðu en það má vel vera að slíkt mat þurfi að fara fram varðandi einstök mál, ég skal ekkert segja um það. Ég hef ekki skoðað þetta þannig sérstaklega en lýsi mig reiðubúinn til að hlusta á öll sjónarmið í þeim efnum.