fjárlög 2023.
Frú forseti. Fram hefur komið í fjölmiðlum að hæstv. dómsmálaráðherra hyggst leggja fram að nýju frumvarp til laga um breytingar á lögum um útlendinga á þessum þingvetri, frumvarp sem áður hefur verið lagt fram í fjórgang. Helstu breytingarnar með frumvarpinu eru m.a. þær að taka í burtu heimildir íslenskra stjórnvalda og skyldu til að taka til efnismeðferðar hér á landi umsóknir fólks sem fengið hefur stöðu flóttamanns í öðru landi áður. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu og samkvæmt því sem komið hefur fram í máli hæstv. dómsmálaráðherra í fjölmiðlum er einn megintilgangur frumvarpsins og þessara breytinga að auka skilvirkni og bæta meðferð almannafjár. Fram hefur komið að tilefni frumvarpsins sé að einstaklingar sem hafa hlotið vernd í öðru ríki áður séu svo stór hluti þeirra umsækjenda sem hingað leita, það sé allt of auðvelt fyrir þetta fólk að leita hingað. En þegar ég fór að glöggva mig á áætluðum breytingum í fjárlögum undir verksviði hæstv. dómsmálaráðherra, útlendingamálum, í málaflokknum fagleg og skilvirk málsmeðferð stjórnvalda í þágu þjónustuþega, fannst mér skjóta skökku við að hvergi er minnst á neinar breytingar í þessa veru. Það er ekki gert ráð fyrir neinni lækkun á kostnaði við meðferð þessara mála. Það er enginn sparnaður fyrirséður samkvæmt þessum fjárlögum þrátt fyrir þessar ægilega góðu breytingar sem eiga að leiða til skilvirkni í frumvarpinu sem hæstv. dómsmálaráðherra hyggst leggja fram að nýju. Mín fyrsta spurning til hæstv. dómsmálaráðherra er: Ef hann telur að þetta frumvarp muni leiða til svo gríðarlega aukinnar skilvirkni, hvers vegna er ekki gert raunverulega ráð fyrir því að það verði sparnaður í þessum málaflokki?