153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:20]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað ákveðinn útúrsnúningur þegar talað er um að ég hafi áðan verið að vitna til þess fólks sem leitar verndar og það sé að koma hingað og leita eftir dvalarleyfi og atvinnuleyfi á grundvelli verndarákvæðisins og verndarfyrirkomulagsins. Ég var auðvitað að vitna til þeirra sem koma hér frá jafnvel öruggum löndum og úr öðrum aðstæðum heldur en eiga við í verndarkerfi. Það er fjöldi fólks sem vill koma til Íslands, starfa hér og vinna, frá þriðja ríkis löndum og víðar frá. Ég er að ítreka að það er mitt sjónarmið að það eigi að rýmka þessar reglur sem við störfum eftir og greiða leið fyrir fólk með fjölbreytta reynslu, menntun og þekkingu inn í íslenskt samfélag. Við höfum þörf fyrir vinnandi hendur. Við höfum þörf fyrir fólk frá mismunandi svæðum með mismunandi þekkingu, reynslu og réttindi til þess að koma hingað og starfa. Öðruvísi munum við ekki geta mannað atvinnulífið á Íslandi sem kallar eftir þessu. En þetta er sú hlið sem við viljum greiða en standa vörð um verndarkerfið og grunngildi þess eins og þau eru fram sett af Sameinuðu þjóðunum og snúast um það að skjóta skjólshúsi yfir og vernda fólk sem kemur frá löndum eins og Úkraínu þar sem líf og limir fólksins eru í hættu. Þess vegna opnuðum við dyrnar alveg sérstaklega fyrir Úkraínufólki. Þau eru u.þ.b. helmingur, ef ég man rétt, af þeim sem hingað eru að koma. (Gripið fram í.) 20% af þeim sem koma hingað koma frá Venesúela. Það er mjög umdeilt hvort það er öruggt land eða ekki, önnur Norðurlönd skilgreina til að mynda Venesúela sem öruggt land á meðan við gerum það ekki. Spánverjar taka vel á móti þeim og veita þeim dvalarleyfi á grundvelli mannréttinda- eða mannúðarsjónarmiða til eins árs. (Forseti hringir.) Við veitum þeim viðbótarvernd til fjögurra ára. Það er ekki í samræmi við það sem til að mynda önnur Norðurlönd gera. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða. (Forseti hringir.)

Útlendingateymið, svo því sé svarað, er fólkið sem starfar að útlendingamálum í ráðuneytinu. Álagið þar er auðvitað mikið eins og (Forseti hringir.) á öllu kerfinu núna þar sem allur kostnaður er að fara stórkostlega fram úr því sem áætlað hefur verið.