fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og að fylgja sínum málaflokki úr hlaði. Mig langar í minni fyrri spurningu að ræða aðeins um lögregluna þrátt fyrir að fleiri hafi gert það hér í dag. Í fyrsta lagi langar mig að fagna hækkun á framlögum til að mæta kostnaði við að fjölga nemendum í lögreglunni. Ég held að það skipti gríðarlega miklu máli að fjölga þeim sem þar eru í námi, ég held að það sé partur í því til að mynda að auka öryggi lögreglumanna að hafa þar vel menntað fólk og að námið sé fjölbreytt og geri fólk í stakk búið til að mæta áskorunum sem við blasa í starfi í samfélaginu. Svo er spurning hvað gerist þegar þetta fólk hefur lokið námi og ég hef, líkt og önnur hér, áhyggjur af því að það þurfi að styrkja lögregluna enn frekar. Tímabundin framlög eins og þau sem koma frá hv. fjárlaganefnd eru í eðli sínu tímabundin en ef það er talið mikilvægt þarf auðvitað að koma þeim inn í ramma til lengri tíma.
Mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hann sjái það fyrir sér til framtíðar, nú þegar komnir eru peningar í að fjölga nemendum í lögreglunni, að við getum tryggt það að koma öllu þessu fólki í vinnu í framtíðinni því að það hlýtur að þurfa að fylgja á eftir.