153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[12:00]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra getur auðvitað komið hingað upp og haldið áfram að hrópa á fólk: Þið hafið það rosalega gott, það hefur allt þróast á besta veg. Lýsir það ekki ákveðinni minnimáttarkennd hjá ríkisstjórninni? Þegar fólk hefur það gott, þegar fólk finnur að ráðstöfunartekjur þess aukast, þarf þá stöðugt að vera að segja fólki það til að það átti sig á því? Finnur það það ekki svolítið sjálft? Hér talar hæstv. félagsmálaráðherra um þróun atvinnuleysisbóta. Ekkert sem hann segir breytir því að síðan hann sjálfur tók við félagsmálaráðuneytinu síðla árs 2021 hafa grunnatvinnuleysisbætur rýrnað að raunvirði um hátt í 20.000 kr. Þetta er ekkert sérlega manneskjuleg stefna. Mig langar hér í seinna innleggi mínu, vegna þess að í rauninni fékk ég engin skýr svör við því frá félagsmálaráðherra hvers konar skilaboð sé verið að senda verkalýðshreyfingunni og aðilum vinnumarkaðarins með þessum fjárlögum, að bera undir hann það sem kemur fram í nýrri ályktun frá miðstjórn ASÍ. Þau benda á það, eins og við bentum á í gær hér á þinginu, að hækkanir á krónutölugjöldum og aukin skattlagning á bifreiðar koma verst niður á tekjulægstu hópunum sem geta ekki bara valið sig einhvern veginn frá húsaskjóli og neyslu á nauðsynjavörum. Orðrétt segir miðstjórn ASÍ, með leyfi forseta:

„Verkalýðshreyfingin sættir sig aldrei við ríkisfjármálastefnu sem felst í að velferðarkerfið sé notað sem hagstjórnartæki. Slík fjármálastefna mun ekki stuðla að sátt og stöðugleika á vinnumarkaði.“

Ég vil spyrja hæstv. félagsmálaráðherra, fyrst hann er svona ánægður með þetta fjárlagafrumvarp: (Forseti hringir.) Hvað er það sem miðstjórn Alþýðusambandsins er að misskilja? Að hvaða leyti hefur verkalýðshreyfingin rangt fyrir sér?