153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[12:09]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar og tek hjartanlega undir það að með þessari heildarsýn á þjónustu við eldra fólk væri hægt að gera því kleift að standa lengur á eigin fótum á sínum eigin forsendum og svo væri líka, þar sem við erum nú að ræða hér fjárlög, hægt að spara eitthvað í dýrari úrræðum og nýta betur ódýrari úrræði eins og heimaþjónustu og slíkt. Ég fagna því þessari vinnu og hlakka til að sjá hvað kemur meira út úr henni frá hæstv. ráðherra.

Mig langar undir lok minnar síðari fyrirspurnar að fá að ræða aðeins við ráðherra um aðila sem standa fyrir utan EES-svæðið en vilja gjarnan koma hingað til að starfa. Ég veit að ráðherra er að horfa til þess að auðvelda sérfræðingum, sérstökum sérfræðingum, að koma hingað, sem ég fagna gríðarlega og held að það sé mun mikilvægara verkefni en mörg gera sér grein fyrir til að efla atvinnulífið, við fáum inn ákveðna þekkingu sem við kannski búum ekki að eða höfum alla vega ekki mikið af og ekki eins mikið og við þyrftum að hafa til þess að halda áfram að blómstra varðandi nýsköpun og annað. En mig langaði þá að velta því upp við ráðherra, þar sem búið er að ræða hér talsvert í dag þá aðila sem nýta verndarkerfið þegar þeir koma í raun kannski ekki úr þannig aðstæðum sem verndarkerfið grípur, heldur vilja kannski einfaldlega fá að vinna hér og starfa og lái þeim hver sem vill, hvernig við getum liðkað til fyrir þessum aðilum, sem eru utan EES og eiga ekki heima í verndarkerfinu, að koma hingað og starfa.