153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[12:43]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir samtalið í dag og ætla að byrja á að fá að þakka hv. þingmanni fyrir að segja að það þurfi að vinna þessi mál, þ.e. málefni fólks á flótta, af virðingu vegna þess að það held ég að sé algjört grundvallaratriði í nálgun okkar á þennan málaflokk. Þann 1. júlí síðastliðinn tók Vinnumálastofnun yfir þjónustu við fólk á flótta frá Útlendingastofnun. Við höfum síðan verið að vinna að því, og þá Vinnumálastofnun fyrst og fremst, að reyna að bæta aðstöðu fólks sem er í þeim úrræðum sem um er að ræða fyrir fólk á flótta. Við höfum síðan í ráðuneytinu unnið með Sambandi íslenskra sveitarfélaga drög að samningi um samræmda móttöku sem Reykjanesbær er hluti af og ég veit að hv. þingmaður þekkir vel. Sá samningur er í raun tilbúinn. Ég átti fund með Reykjanesbæ í þessari viku, fulltrúum Reykjanesbæjar, þar sem við vorum að ræða bæði þennan nýja samning og aðkomu þeirra að honum, og ég er bara mjög bjartsýnn á að það verði á allra næstu dögum eða vikum. Við þurfum að finna fleiri sveitarfélög til að koma inn í samræmdu móttökuna þannig að hægt sé að létta meira álaginu af þeim sveitarfélögum sem hafa verið ein í þessu. Annað atriði sem við þurfum líka að vinna að er að finna fleiri sveitarfélög og gera samninga við þau eða vera með úrræði í fleiri sveitarfélögum fyrir þau sem eru að koma áður en þau fá vernd, því það er langlíklegast að þau ílendist í því sveitarfélagi sem þau byrja að búa í. Það er hluti af því sem við erum að taka upp núna, (Forseti hringir.) m.a. með Reykjanesbæ en líka Hafnarfjarðarbæ. Við vonumst til að geta fundið einhverjar lausnir á þessu á allra næstu misserum.