fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil fá að byrja þar sem þeir enduðu sem voru í andsvörum hér á undan varðandi möguleika á því að þessu verði bætt við lögbundin hlutverk sveitarfélaga, sem þegar eru ærin ef dæma má af því hvernig þau standa, þau standa sum hver höllum fæti og eiga í erfiðleikum með að standa undir sínum lögbundnu skyldum. Mig langar að spyrja hæstv. félagsmálaráðherra hvort hann hafi rætt þessar hugmyndir, sem hann tók vel í, á vettvangi ríkisstjórnarinnar og hvort þetta sé eitthvað sem við megum vænta þess vegna strax á þessum þingvetri, að það verði formað frumvarp sem gerir sveitarfélögum landsins skylt að taka við tilteknu hlutfalli þeirra flóttamanna sem til landsins koma. Ég vil biðja hæstv. ráðherra að verja nokkrum orðum í að útskýra það.
En það sem ég ætlaði að spyrja hæstv. ráðherra um snertir það sem ég vísaði í í andsvari mínu við hæstv. innviðaráðherra í fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra fyrr í morgun þar sem staðan á landamærunum hefur verið sett yfir á hættustig vegna álags til að tryggja öryggi á móttöku á þeim mikla fjölda fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi. Fjárveitingar í fjárlögum sem nú liggja fyrir eru svona nokkurn veginn á pari, rýrna aðeins að raunvirði ef tekin er út fyrir sviga verðlagsþróun og launaþróun. Miðað við þær lýsingar sem koma fram í fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra frá því í morgun, telur hæstv. ráðherra að hans hluti, þ.e. það sem að honum snýr sé — ja, sér ráðherrann til lands, ef svo má segja, miðað við þessa miklu aukningu og þær fjárveitingar sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpinu?